03maí
Löngu kominn tími á blogg
Prófin í fullum gangi og svona...fer í 8 próf og er búinn í 2, 1 á mánudag, 1 á þriðjudag og 2 á miðvikudag, síðan 2 á þriðjudag í þarnæstu viku.
Spila í brúðkaupinu hjá Helgu Sveins og aldrei að vita nema maður jafnvel reyni að frumflytja eins og eitt lag.
Búinn að vera mikið að skoða gítara og fann nú gítar sem mig langar alveg svakalega í en hann er því miður svo dýr að ég sé það ekki að ég geti fengið mér hann á næstunni. Ætla nú að láta link fljóta með á þennan fallega grip.
http://www.musiciansfriend.com/product/Gibson-Custom-Shop-57-Custom-Les-Paul-Black-Beauty-Electric-Guitar?sku=517464Ég er ekkert voðalega góður í blogginu þannig að ég ætla að láta þetta nægja
06mars
Jæja, datt nú í hug að reyna að halda þessu bloggi aðeins lifandi
Ég semsagt fór áðan og keypti mér svartan Takamine G-series gítar og það er alveg svakalega gott að spila á hann, hljómar vel og er flottur.
Söngkeppni MA á miðvikudaginn og ég er að fara að spila undir hjá Þóri á hljómborðið í House of the Rising Sun og svo er ég að fara að spila í Alþýðuhúsinu á sunnudaginn og svo verður maður víst 17 ára þá líka en fæ því miður ekki bílprófið því að ég hef ekki verið nógu harður á því að halda áfram í ökunáminu.
Veit svosem ekkert hvað ég á að skrifa þannig að ég held að ég láti þetta bara nægja.
bææ
14febrúar
Þá er söngkeppnin þetta árið búin og auðvitað vinnur dalvíkingur í þessu. Það er bara að skapast hefð fyrir því að Dalvíkingarnir vinni þessa keppni. Þetta árið var það hann Stefán sem vann þetta með laginu Fake Plastic Trees sem var alveg svakalega vel flutt hjá honum. Mér finnst reyndar skrítið að Snorri og Íris hafi ekki náð á lista þar sem að mér fannst þau alveg eiga það skilið.
Sjálfur bjóst ég ekki við miklu þar sem að atriðið var ekki neitt voðalega vel æft hjá okkur Þóri, ég með slæma hálsbólgu og bara ekki jafn góður söngvari og þau nöfn sem ég hef nefnt hérna áðan ásamt fleiri söngvurum.
Það var bara svaka stemming í græna herberginu þar sem að maður spjallaði við fólkið, djammaði aðeins með Snorra, Eyþóri og Stefáni og fleira. Þetta er allavega búið að vera alveg rosalega gaman og það er bara aldrei að vita nema maður prufi aftur á næsta ári og vona þá að maður verði orðinn aðeins færari söngvari og heilsan verði manni hliðhollari:p
En þá er það ekkert meira en bara til hamingju Stefán og gangi þér nú sem best í keppninni sjálfri.
10febrúar
Datt nú í hug að það væri kannski kominn tími á blogg...
En já, söngkeppni VMA á fimmtudaginn og svona skemmtilegt. Hafði verið að vonast til að geta verið kominn með nýja gítarinn fyrir hana en það eru nú ekki miklar líkur á því úr þessu nema Tónabúðin eigi Washburninn á lager einhversstaðar sem ég einhvernvegin efa.
Fann minn drauma kassagítar núna um helgina og heitir hann Line 6 Variax acoustic 700 og er það sem kallað er modeling acoustic og er hann því 16 gítarar í einum. Hann er því miður það dýr að hann þarf að bíða aðeins en hann kemst því á listann með Gibson Les Paul

Veit annars voða lítið hvað ég á að segja annað en það að lagið sem varð fyrir valinu fyrir söngkeppnina er Hotel California með hljómsveitinni Eagles, spilað unplugged á gítar og bassa.
12janúar
Þá fer nú að styttast í söngkeppnina í VMA og þá fer maður að pæla hvaða lag maður ætti svo að taka. Ég hef ákveðið að reyna að taka lag eftir mig við texta eftir Gunna föðurbróðir. En þá kemur það inn hvernig maður vill spila það. En og þá kemur inn að mig langar að hafa allt undirspil live og því langar mig að finna einhverja sem spila á strengi.
Svo að hérmeð auglýsi ég eftir fólki sem spilar á fiðlur, violur, selló og eitthvað svoleiðis þannig að ef þið spilið á einhver strengjahljóðfæri eða þekkið einhvern sem spila sem væru til í að spila að minnsta kosti á upptöku af þessu lagi og jafnvel á keppninni sjálfri þá bara endilega hafa samband við mig á msn eða tölvupósti eða eitthvað. MSN-ið er
hansfridrik@hotmail.comSíðan svona í lokin hef ég ákveðið að setja inn link á gamla upptöku af harmonikkunni minni:
http://www.esnips.com/doc/c289e5f7-45c1-4701-97e9-c2e8286a6e73/Prelude-and-fuga-in-g-minor---Bach
23desember
Jájá, þá er þorláksmessan komin með sínum skötu- og hangikjöts ilm. Amma er niðri að byrja að sjóða skötuna og pabbi er búinn að fá afmælisgjafirnar. Ég, mamma og systur mínar gáfum pabba plötuspilara og hvað hann var ánægður þegar hann sá hvað þetta var í pakkanum. Nú er maður bara búinn að sitja við spilarann í morgun og hlusta á gamlar plötur með Frank Zappa. Það bara er eitthvað við Vinylinn sem er svo geggjað...
Jólin eiga svo víst að koma á morgun...stefnir allt í svaka stuð þá...spurning hvað maður á að segja.
Jólagjafirnar klárar og svona, tréð skreytt í gærkvöldi og svo pakkarnir undir það í kvöld.
Voða lítið að segja núna svo að ég læt þetta gott heita.
Verið þið blessuð og gleðileg jól
16desember
Jájá, var að koma frá þeim skemmtilega og árlega viðburði þegar jólasveinarnir koma á Kaupfélagssvalirnar hérna og dansa svo í kringum jólatréð sem í ár er nú eiginlega svona frekar aumingjalegt. Svo fékk maður epli og allt sko:P
Síðan eru styrktartónleikarnir fyrir Stærri Árskóg í kvöld. Fór í Olís áðan og keypti mér miða. Verða örugglega flottir tónleikar og flott framtak hjá Kristjáni og Aroni.
Það tókst að bjarga nikkunni svona næstum því alveg. Það eina sem sést á henni núna er að álnetið innan í grillinu er ennþá pínu beyglað og skrautrendurnar sem brotnuðu eru ennþá brotnar og sá partur af þeim sem brotnaði alveg af er ekki kominn á...
Ekki meira í bili að ég held
BÆÆ
11desember
Versta byrjun á jólafríi hjá mér nokkurntíma!!!
Jújú, það er allt gott og blessað við það að vera kominn í jólafrí en það sem kom fyrir í gær svipti mig öllu jólaskapi.
Það var nú þannig að ég var að reyna að tengja heimabíóið við sjónvarpið og eins og þeir sem hafa séð herbergið mitt vita er að það er pínulítið og sjónvarpið á hillu á veggnum sem það rétt passar í. Maður þarf að ýta sjónvarpinu fram til að komast aftan að því og það var það sem ég þurfti að gera. Þegar ekkert gekk með það að fá skart snúruna sem er í heimabíóinu til að virka tengdi ég PS tölvuna og horfði bara á myndina í henni. Svo þegar myndin var búin fór ég og slökkti á sjónvarpinu en þá hefur það ekki verið almennilega uppá því að við það að ég ýtti aðeins í það til að slökkva á því þá rann það og datt niður af hillunni. Það er nú ekki versti parturinn heldur er hann sá að harmonikkan mín var á sínum stað í pokanum en ekki töskunni og sjónvarpið lenti ofan á henni. Það var í lagi með sjónvarpið en þegar það var búið að koma því á sinn stað þá tók ég eftir því að pokinn var óeðlilega langt niður þar sem að sjónvarpið hafði lent á henni svo að ég dreif mig að opna pokann og taka hana út. Þá blöstu þessi ósköp við. Harmonikkan var beygluð og 2 af 5 svörtum skrautröndum voru brotnar. Beiglan varð til þess að nú eru registerarnir mjög stífir og í hvert skipti sem maður ýtir á neðstu D nótuna heirsit smellur. Pabbi fór með hana inn á Akureyri í morgun til að láta Pálma í tónabúðinni líta á hana og ég bara vona að það þurfi ekki að panta nýtt stykki að utan því að það tekur örugglega 2-3 mánuði að búa það til og senda það. Harmonikkan mín er hvít og það er svo erfitt að fá þær því að eftirspurnin er svo mikil. Vona bara að það sé hægt að kippa þessu í liðinn fljótlega án þess að þurfa að fara í stóraðgerðir.
30nóvember
Ég er búinn að vera í geggjuðu jólaskapi í allan dag. Í skólanum í morgun var nánast enginn þannig að það var geðveikt þægilegt að sitja í gryfjunni. Rólegt, búið að skreyta allt og jólatónlist í græjunum. Svo þegar ég kom heim biðu stelpurnar bara eftir mér svo að það væri hægt að fara að skera laufabrauð. Byrjuðum semsagt í því rétt eftir 2 og svo var búið að steikja og allt einhverntíma á milli 5 og 6.
Prófin eru svo að byrja í næstu viku, fer í próf á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag og síðan tek ég eitt próf á mánudaginn 10. og þá er ég kominn í jólafrí!

Þarf líklega að byrja að læra eitthvað fyrir prófin um helgina því að ég þarf að lesa svo mikið fyrir náttúrufræðina að það er ekki fyndið. Ég kláraði rúmlega 2 kafla í fagabók undir glósur, síðan þarf ég að ná mér í helling af glósum frá kennaranum mínum og síðan er hellingur af verkefnum sem ég þarf að fara yfir. Mig reyndar vantar ekki nema 1,25 á lokaprófi til að ná áfanganum en ætli maður reyni ekki að ná einhverju hærra. Ég þarf ekki að taka lokapróf í stærðfræði svo að maður er ánægður með það. Síðan fer ég að taka upp lögin við ljóðin hans Gunna föðurbróður sem ég hef samið í jólafríinu.
Meira seinna
Hans Friðrik
30nóvember
Kennsla búin, vúhúúú!!!